
Kerfill
Anthriscus cerefoliumUppruni
Milli Svartahafs og Kaspíahafs
Notkun
Fuglakjöt, sjávarfang, rótargrænmeti, súpur, sósur
Heilsufarið
Heilsubætur
Meltingarkerfi
Þekktur fyrir að styðja við heilbrigt meltingarkerfi.
Blóðþrýstingur
Sagður geta hjálpað til við að lækka blóðþrýsting.
C vítamín
Styður við ónæmiskerfið og heilsu líkamans.
Bólgueyðandi
Náttúrulegar efnasambönd geta dregið úr bólgum.
Þessar upplýsingar eru einungis til fróðleiks, ráðfærðu þig við lækni varðandi heilsufarsráð.
Umhirða
Hvernig á að hugsa um kerfil
Vökvun
Vökvið reglulega og haldið jarðveginum rökkum.
Birta og sól
Þarf gott skjól, þolir ekki beina sól. Hentar vel í skugga á Íslandi.
Hitastig
Þolir íslenskt sumar utandyra í góðu skjóli
Jarðvegur
Ríkur og rakahaldandi jarðvegur hentar best.
Hugmyndir að notkun
Saxaður yfir steiktan kjúkling rétt áður en borið er fram
Í Béarnaise eða hvítlaukssmjör með fiski
Blandaður í rótargrænmetissúpu
Ferskur í salat með graslauk og estragon
Innihald
- 2 skalottlaukur, fínt saxaðir
- 4 greinar ferskt timian
- 2 greinar rósmarín
- ½ búnt steinselja
- 4 greinar kervill
- 4 greinar ferskt estragon
- ¼ dl safi úr ferskri sítrónu
- 1 tsk. Sýrður rjómi
- 1 tsk. Sterk Dijon-sinnep
- 70gr eða 5 msk smjör
- 10ml eða 2 tsk. Vatn
- Salt og pipar eftir smekk
Entrecode sósan (græna leyni sósan)
- 1
Byrjað á að taka til pott fyrir sósuna
- 2
Saxið skalottlaukinn fínt og rífið laufin af timian og rósmarín niður.
- 3
Setjið þetta í pott með smjörinu og hinum kryddjurtunum yfir vægan hita.
- 4
Kryddið létt og látið malla í um 5 mínútur þar til allt er mjúkt og glært, ekki brúnað.
- 5
Í skál, þeytið saman sýrða rjómann og Dijon-sinnepið
- 6
Hellið volgri kryddsmjörsblöndunni út í, bætið síðan við sítrónusafa og vatni.
- 7
Blandið saman þar til sósan er orðin slétt og rjómakennd.
- 8
Smakkið til og bætið við saltiog pipar eftir smekk.
- 9
Setjið sósuna aftur í pottinn og haldið henni heitri yfir mjög vægum hita.
- 10
Berið fram yfir grillaðri entrecote-steik með frönskum kartöflum og salati