Upphafið árið 1986
Gróðrarstöðin Ártangi var stofnuð árið 1986 af Sigurdísi Eddu Jóhannesdóttur og Gunnari Þorgeirssyni. Nýkomin heim frá Danmörku þar sem þau höfðu unnið við garðyrkju á nokkrum stöðvum og Gunnar hafði stundað nám í Gartnerskolen í Søhus, hófu þau reksturinn með einu 200 m² plasthúsi þar sem pottaplöntur voru ræktaðar.
Með tímanum stækkaði starfsemin, fleiri hendur bættust við og sumarblóm og laukblóm komu til sögunnar til að nýta húsakostinn allt árið um kring. Allt gekk vel fram að hruni.

Breyttir tímar, ný tækifæri
Árið 2013 hafði pottaplöntusalan dregist svo mikið saman að þurfti að breyta til. Ákveðið var að hætta nánast alveg með pottaplönturnar og prófa að rækta kryddjurtir í pottum í staðinn. Fyrstu kryddjurtirnar fóru á markað fyrir jólin 2013 og viðtökurnar voru frábærar.
Í dag starfa 7–10 manns í um 3000 m² ræktunarrými, bæði í gróðurhúsum og kælum, þar sem kryddplöntur eru framleiddar allt árið um kring.

Framleiðslan í dag
Á vorin fylgja sumarblóm en laukblóm taka við yfir veturinn — túlípanarnir eru langstærsta sölueiningin með tugum lita og afbrigða. Kryddjurtirnar eru seldar í gegnum Sölufélag garðyrkjumanna sem dreifir þeim í dagvöruverslanir, en túlípanar og sumarblóm fara í gegnum Grænan markað og þaðan í blómabúðir. Við erum með kryddplöntusölu allt árið en þá er einungis opið á virkum dögum.
Á sumrin er einnig heimasala þar sem gestur á leið um getur stoppað og keypt kryddjurtir og blóm beint frá stöðinni.

Ný kynslóð tekur við
Árið 2023 tók dóttir stofnendanna, Freydís Gunnarsdóttir, við rekstri Ártanga og stýrir stöðinni í dag. Með henni heldur arfleifð fjölskyldunnar áfram. Sömu gildi, sami metnaður og sama skuldbinding við að rækta það besta sem völ er á.

Vistvæn ræktun og björt framtíð
Ártangi er vistvæn stöð, þó ekki séum við með neina vottun um slíkt. Við endurnýtum áburð, vatn og mold og notum lífrænar varnir til að tryggja að ræktunin okkar sé í sem bestu samræmi við náttúruna.
Við lítum björtum augum til framtíðarinnar og leggjum mikla áherslu á að koma auga á ný tækifæri og nýta þau eins og bestur er kostur.