
Oreganó
Origanum vulgareUppruni
Vestur- og suðvestur Evrópa
Notkun
Pasta, pizzur, kjötréttir, fiskréttir, grillað grænmeti, kryddolíur
Heilsufarið
Heilsubætur
Andoxunarefni
Oreganó er með mest andoxunarefni af öllum kryddjurtum — mun meira en til dæmis epli eða blábær.
Bólgueyðandi
Carvacrol og thymol í oreganó eru öflug bólgueyðandi efnasambönd.
Sýklaeyðandi
Hefð fyrir notkun oreganós til að verjast sýkingum og styðja við ónæmiskerfið.
Meltingarkerfi
Getur létt á meltingu og dregið úr uppþembu.
Þessar upplýsingar eru einungis til fróðleiks, ráðfærðu þig við lækni varðandi heilsufarsráð.
Umhirða
Hvernig á að hugsa um oregano
Vökvun
Vökvið í skálina annan hvern dag, oreganó þolir að þorna örlítið á milli vökvana.
Birta og sól
Þarf góða birtu og hita, hentar vel við sólríkan glugga.
Hitastig
Þolir allnokkurn kulda en lifir ekki alltaf veturinn á Íslandi.
Jarðvegur
Næringaríkur og rakahaldandi jarðvegur hentar best.
Hugmyndir að notkun:
Þurrkað eða ferskt á heimabakað pizzudeig
Í tómatsósu með pasta og parmesan
Í kryddolíu með hvítlauk og chili
Yfir grillað grænmeti eða lambakjöt