Heimagert basilikusmjör gert með ferskri basiliku beint úr gróðurhúsum Ártanga. Fullkomið yfir nýbakað brauð, pasta eða steiktan fisk. Einfalt, náttúrulegt og fullt af bragði.
Gróðrarstöðin Ártangi framleiðir pestó og smjör úr gæða kryddjurtum sem ekki seljast og minnkar þar með kolefnisspor og matarsóun.