Bakaðar kartöflur með timian og sesamfræum


Tími40 mín
ErfiðleikastigEinfalt

Fullkomið meðlæti með öllum mat. Einfalt og slær alltaf í gegn.

Innihald

  • 500 g bökunarkartöflur, ca. 5 stk
  • Smá ólifuolía
  • Timian
  • Sesamfræ
  • Salt og pipar

Leiðbeiningar

  1. 1

    Skrælið kartöflurnar og skerið lítillega af einni hliðinni svo þær rúlli ekki.

  2. 2

    Skerið niður í hálfa kartöflu með 2mm millibili — passið að skera ekki í gegn.

  3. 3

    Setjið á bökunarplötu og penslið með ólífuolíu.

  4. 4

    Kryddið með salti, pipar, timian og sesamfræum — reynið að fletta rifunum aðeins opnum svo kryddið fari á milli laganna.

  5. 5

    Bakið í 25-30 mínútur þar til kartöflurnar eru stökkar og gullinbrúnar.

Ábending

Ef vill má skræla kartöflurnar aðeins þykkari og steikja hýðið sem stökkt nasl.

Hafa Samband

Sendu okkur skilaboð