Balsam plómutómatar með tagliatelle
Safaríkir plómutómatar bornir fram með tagliatelle og fersku klettasalati. Höfundur uppskriftar er Nanna Rögnvaldardóttir

“Tómatarnir verða bragðmiklir eftir að hafa verið í ofninum, þolinmæðin borgar sig!”
Innihald
- 6-8 plómutómatar, þroskaðir
- 4 msk ólífuolía
- 1 tsk sykur, helst hrásykur
- Nýmalaður pipar
- 1 msk basilíka
- Balsamedik
- 300 g pasta, t.d. tagliatelle
- Hnefafyllir af Klettasalati
- Salt
Leiðbeiningar
- 1
Hitið ofninn í 140°C.
- 2
Skerið tómatana í fjórðunga eftir endilöngu.
- 3
Dreifið dálitilli olíu í eldfast mót og raðið tómötunum í það með hýðið niður.
- 4
Dreifið sykri yfir og kryddið með pipar, salti og basilíku.
- 5
Ýtið balsamediki og afganginum af olíunni yfir.
- 6
Bakið í 45-60 mínútur þar til tómatarnir eru hálfþurrir og bragðmiklir.
- 7
Sjóðið pastað í saltvatni samkvæmt leiðbeiningum, hellið í sigti og hvolfið í skál.
- 8
Ýtið olíunni af tómötunum yfir pastað og blandið klettasalatinu saman við.
- 9
Raðið tómötunum ofan á og berið fram.