Kryddjurtasalsa
Fersk og góð salsasósa sem er full af bragði.
Tími10 mín
ErfiðleikastigEinfalt

“Fullkomið með grilluðu kjöti, fisk eða með brauði.”
Innihald
- 100g möndlur, þurrristaðar
- 3 msk af fersku rósmarín
- 3 msk af fersku timian
- 3 msk af ferskri salvíu
- 1 búnt kóríander
- 1/2 búnt mynta
- 1 ½ tsk salt
- 3 msk sítrónusafi
- 1 ½ dl jómfrúar ólífuolía
Leiðbeiningar
- 1
Saxaðu allar kryddjurtir smátt og blandaðu saman
- 2
Bættu við sítrónusafa og jómfrúar ólífuolíu
- 3
Bættu við salti eftir þöfum og hrærðu vel
Geymsla og ending
Hægt er að geyma salsað í vel lokaðri krukku í ísskáp í allt að viku. Gott er að hella smá auka ólífuolíu yfir til að loka fyrir loft, þannig heldur hún bæði fallegum lit og ferskleika betur.