Mojito
Klassískur mojito með ferskri myntu beint frá Ártanga. Einfalt, ferskt og fullkomið í sólinni.
Tími5 mín
ErfiðleikastigEinfalt

Innihald
- 3 bátar lime
- 1 teskeið hrásykur
- Lúkfylli af myntu
- Klakamulningur
- Romm
- 7up eða sódavatn
Leiðbeiningar
- 1
Setjið lime-bátana og hrásykurinn í glasið.
- 2
Marið lime og sykur saman þar til safinn rennur úr liminu.
- 3
Bætið við ferskum myntulaufum og marið örlítið.
- 4
Fyllið glasið með klakamulningi.
- 5
Hellið 3cl af rommi yfir klakann.
- 6
Fyllið upp með 7up eða sódavatni.
- 7
Hrærið vel með skeið og passið að komast alveg í botninn svo lime og sykur blandist vel við.
Geymsla og ending
Mojito er best borið fram strax. Hægt er að undirbúa lime og sykurinn fyrirfram en bætið myntunni og klakanum við rétt fyrir neyslu.