Pestó


Tími15 mín
ErfiðleikastigEinfalt

Fullkomið með nýbökuðu brauði eða út á pastað.

Innihald

  • 80 gr basilika
  • 50 gr furuhnetur
  • 50 gr parmesan ostur
  • 2 hvítlauksrif
  • Ca 150ml ólífuolía
  • Salt og pipar

Leiðbeiningar

  1. 1

    Brúnið furuhneturnar á snarpheitri pönnu þar til þær eru gullinbrúnar, kælið.

  2. 2

    Setjið basil, ost, hvítlauksrif og olíu í matvinnsluvél. Vinnið þar til blandan er mjúk og falleg.

  3. 3

    Kryddið eftir smekk.

Geymsla og ending

Hægt er að geyma pestóið í vel lokaðri krukku í ísskáp í allt að viku. Gott er að hella smá auka ólífuolíu yfir til að loka fyrir loft, þannig heldur það bæði fallegum lit og ferskleika betur.

Hafa Samband

Sendu okkur skilaboð