Íslensk tómatsúpa með timian og rósmarín
Hlýjar og bragðrík tómatsúpa með ferskum kryddjurtum. einföld uppskrift sem byggir á góðu hráefni. Höfundur uppskriftar er Nanna Rögnvaldardóttir.

“Lykilatriðið er að tómatarnir séu vel þroskaðir og rauðir.”
Innihald
- 1 íslensk gulrót
- 1 gul íslensk paprika, lítil
- 25 g íslenskt smjör
- 800 g íslenskir tómatar, vel þroskaðir
- 2 tsk ferskt timjan
- 1 tsk ferskt rósmarín
- Nýmalaður pipar
- 3/4 l vatn
- 2-3 msk graslaukur
- íslenskur fetaostur
Leiðbeiningar
- 1
Skerið gulrót og papríku í litla teninga.
- 2
Bræðið smjörið í potti og látið gulrót og papríku krauma við vægan hita í nokkrar mínútur.
- 3
Saxið tómatana og bætið út í ásamt timian og rósmarín.
- 4
Kryddið með töluvert miklum pipar og salti.
- 5
Hitið að suðu og látið malla við hægan hita í 25-30 mínútur.
- 6
Smakkið til og dreifið söxuðum graslauk yfir.
- 7
Takið af hitanum og látið standa 1-2 mínútur.
- 8
Berið fram með fetaosti sem hver setur út í eftir smekk.
Geymsla og ending
Súpan geymist vel í ísskáp í 3-4 daga og er oft enn betri daginn eftir. Hægt er að frysta hana í allt að 3 mánuði.