Íslensk tómatsúpa með timian og rósmarín

1 íslensk gulrót (ef til er, annars 1 appelsínugul íslensk paprika, lítil)
1 gul íslensk paprika, lítil
25 g íslenskt smjör
800 g íslenskir tómatar, vel þroskaðir
2 tsk ferskt timjan, saxað
1 tsk ferskt rósmarín, saxað
nýmalaður pipar
salt
3/4 l vatn
2-3 msk  graslaukur, saxaður
íslenskur fetaostur til að setja út í.

Gulrótin og paprikan skornar í litla teninga. Smjörið brætt í potti og gulrót og paprika látnar krauma í því við fremur vægan hita í nokkrar mínútur. Tómatarnir saxaðir og settir út í ásamt kryddjurtum, nokkuð miklum pipar og salti. Hitað að suðu og látið malla við hægan hita í 25-30 mínútur. Þá er súpan smökkuð til og söxuðum graslauk dreift yfir. Tekin af hitanum og látin standa 1-2 mínútur en síðan borin fram ásamt fetaosti, sem hver og einn setur út í eftir smekk.
Lykilatriði til að súpan verði góð er að tómatarnir séu vel þroskaðir og rauðir og að notaður sé töluvert mikill pipar til að krydda hana.

Höfundur uppskriftar:
Nanna Rögnvaldardóttir

Scroll to top