Kryddjurtir

Notkun ferskra kryddjurta á sér ekki mjög langa sögu á Íslandi. Þessvegna kann fólk almennt ekki mikið á þær.
Ártangaplöntur eru í pottum svo þær séu sem ferskastar þegar þú ferð með þær heim. Á meðan þær eru í pottinum fer best um þær við stofuhita. Ef þú klippir þær niður um leið og þú kemur heim geymast þær í kæli, utan basilikan, hún þolir aldrei undir 10° þá verður hún fljótt svört og ljót. Ártangakryddplöntur eru ungar og því geturðu nýtt alla plöntuna og  þarft í fæstum tilvikum að taka stilkinn frá. Gott er að nota hana fljótt og vel. Við framhaldsræktun er nauðsynlegt að potta henni upp og gefa henni næringu og mikið ljós til að viðhalda bragðgæðum. Ef svo óheppilega vill til að plantan þín þornar, ekki henda henni. Klipptu hana af rótinni og leggðu á pappír og þurrkaðu hana alveg. Hún  er bara orðin að þurrkaðri kryddjurt og bragðið er það sama. Sagt er að maður geti aldrei notað of mikið af kryddjurtum, bara of lítið. Ef þú setur bara smá er það bara liturinn sem breytist ekki bragðið.
Þetta eru kryddjurtirnar sem við framleiðum
Scroll to top