Kóríander er
einær jurt sem kemur frá stöðum sem spanna suður Evrópu, norður Afríku til
suðvestur Asíu. Öll plantan er æt en að mestu eru blöðin og fræin notuð í
matargerð.
Blöðin eru
safarík með svolítið beisku sítrónu/lime bragði. Plantan er mjúk og getur orðið
50 cm á hæð. Blöðin eru breytileg í
formi en í meginatriðum eru þau djúptennt og slétt og verða fjaðurlagaðri því
hærra sem þau ná á blómstilknum. Blómin eru hvít eða ljósbleik og vaxa mörg
saman í hnapp. Krónublöðin sem vísa út úr hringnum eru 5-6mm en þau sem vísa
inn í hringinn eru 1-3 mm. Kóríander er hægt að hafa úti hjá sér á sumrin. Sé
það haft inni skal það vera í björtum glugga og vökvast í skálina hvern dag með
áburði.
Kóríander er
mikið notað í heitar og kaldar sósur og karrý rétti. Kóríander þolir alveg suðu
en er einnig mjög gott hrátt.
koriander-dressing
kryddjurtasalsa