Upprunni
rósmaríns er frá Miðjarðarhafinu og því líður best í hlýju umhverfi. Rósmarín
er einær planta á Íslandi því hún þolir illa veturinn. Forn-Grikkir trúa því að
rósmarín sé tákn tryggðar og það er því ofið í brúðarvendi og brennt sem
reykelsi. Á miðöldum var plantan notuð sem jólaskraut í Evrópu. Rósmarín er
sagt örva minni og hugsun.
Rósmarín
getur náð 1,5m hæð. Laufin minna á barrnálar, um 2-4 cm löng og um 2-5 mm
breið. Laufin eru græn að ofan og hvít að neðan með litlum „hárum“. Plönturnar
blómstra á vorin og eru blómin hvít, bleik, fjólublá eða dökkblá.
Rósmarín er
notað með flestu kjöti, á fiskinn, með kartöflum eða rótargrænmeti. Það er
einnig mikið notað í te og í bæði krydd- og nuddolíur.
islensk-tomatsupa-med-timian-og-rosmarin
kryddjurtasalsa